HEFR1ÞH03 - Heimilisfræði með áherslu á heimilisþrif

Þrif og hreinlæti

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Sérstök áhersla verður á undirstöðuatriði í heimilisstörfum. Viðfangsefnið verður nálgast á fjölbreyttan hátt, farið verður í verklega æfingar ásamt því verða nemendur hvattir til að miðla reynslu sinni.

Þekkingarviðmið

  • Mikilvægi þess að allir taki þátt í heimilisstörfum
  • Helstu áhöldum, verkfærum og heimilistækjum við þrif
  • Að nota hreinlætisvörur í hófi

Leikniviðmið

  • Sópa og skúra gólf
  • Ryksuga
  • Taka úr og setja í uppþvottavél
  • Taka úr og setja í þvottavél
  • Taka úr og setja í þurrkara
  • Strauja
  • Brjóta saman þvott
  • Þurrka af
  • Pússa gler
  • Ganga frá
  • Vaska upp
  • Þrífa baðherbergi

Hæfnisviðmið

  • Greina hvenær viðeigandi er að sinna heimilisþrifum
  • Gera áætlun um heimilisstörf
  • Nýta sér viðeigandi heimilistæki
  • Fara eftir almennum öryggisatriðum við heimilisþrif
  • Þekkja og geta nýtt sér viðeigandi hreinlætisvörur
Nánari upplýsingar á námskrá.is