Opið hús - 9. apríl kl. 17.00-18:00

Þriðjudaginn 9. apríl verður námskynning á sal fyrir nýja nemendur og foreldra þeirra. Nemendur 10. bekkjar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Kynningin stendur frá kl. 17:00 - 18:00. Fagstjórar og einstaka kennarar verða á staðnum ásamt stjórnendum og námsráðgjöfum sem munu kynna skólann og það námsframboð sem skólinn býður upp á.