Listnámsbraut, tónlistarlína 2024 - Stúdentsbraut (LNT24) - 200 ein.

Listnámsbraut, tónlistarlína 2024 tekur gildi haustið 2024. Núverandi nemendur eru á Listnámsbraut, tónlistarlína 2022.

Listnámsbraut - tónlistarlína er í boði í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður upp á nám í almennum greinum og útskrifar nemendur af brautinni en Tónlistarskóli Reykjanesbæjar býður upp á nám í tónlistargreinum. Nemendur geta tekið tónlistargreinar í öðrum tónlistarskólum sem bjóða upp á sambærilega menntun í tónlist.