Félagsvísindabraut 2024 (FÉ24) - 200 ein.

Félagsvísindabraut 2024 tekur gildi haustið 2024. Núverandi nemendur eru á Félagsvísindabraut 2020.

Inntökuskilyrði:
Inntökuskilyrði á félagsvísindabraut eru að hæfnieinkunn í íslensku og ensku sé að lágmarki B og að lágmarki C+ í stærðfræði við lok grunnskóla. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.