ÍÞRG2SU04 - Sund

Sund

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í sundi. Lögð er áhersla á sundtækni og sundþjálfun ásamt sundleikjum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna ásamt öryggisreglum á sundstöðum. Áfanginn er bóklegur og verklegur.

Þekkingarviðmið

  • tækniþáttum sunds
  • þjálffræði
  • sundreglum
  • þjálfunaraðferðum
  • kennslufræði
  • skipulagi á þjálfun
  • sögu sunds

Leikniviðmið

  • útbúa tímaseðla
  • eiga samskipti við iðkendur og þá er koma að greininni
  • framkvæma grunnæfingar í sundi
  • þjálfa sund

Hæfnisviðmið

  • dæma í sundkeppni
  • þjálfa og leiðbeina börnum í sundi
  • geta útbúið þjálfunaráætlanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is