LÍFS1TS05 - Lífsleikni með áherslu á tjáningu

Tjáning og samskipti

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á að efla þekkingu, leikni og hæfni nemenda í notkun tjáskiptaleiða sem henta hverjum og einum. Megin áhersla verður á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur búa nú þegar að. Farið verður í fjölbreytt viðfangsefni, s.s. umræður í litlum og/eða stórum hópum, framsagnarverkefni, hugtakaverkefni og fjölbreytt verkefni sem stuðla að því að styrkja sjálfsmynd nemenda.

Þekkingarviðmið

  • Samskiptaleið sem hentar viðkomandi
  • Skoðunarfrelsi og/eða tjáningarfrelsi
  • Mikilvægi þess að láta skoðanir sínar í ljós og hlusta á sjónarmið annarra

Leikniviðmið

  • Tjá sig fyrir framan nemendahópinn
  • Virða skoðanir annarra
  • Leggja mat á eigin verkefni og/eða frammistöðu
  • Taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir

Hæfnisviðmið

  • Vera meðvitaður um styrkleika sína
  • Að spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Bera virðingu fyrir skoðunum annarra
  • Kynna sjálfan sig með fullu nafni og svara spurningum um fyrirfram ákveðin viðfangsefni
  • Bíða eftir að röðin komi að sér
Nánari upplýsingar á námskrá.is