Skólakerfið INNA

Skólakerfið INNA

INNA er upplýsingakerfi fyrir framhaldsskóla. INNU er ætlað að vera tæki til að auðvelda stjórnun framhaldsskóla. Það veitir starfsfólki og nemendum framhaldsskóla yfirlit yfir nám og námsframvindu og auðveldar stjórnun áfanga og námsframboðs.

Nemendur hafa aðgang að eigin upplýsingum í INNU og þurfa rafræn skilríki til að komast inn í kerfið. Þeir geta þá skoðað stundatöflu sína, námsferil, mætingar, miðannarmat o.fl.

Foreldrar/forráðamenn nemenda yngri en 18 ára fá aðgangsorðið sent í pósti og hafa þá sama aðgang að kerfinu og börn sín. Þeir foreldrar sem ekki hafa aðgangsorð undir höndum en óska eftir því geta haft samband við áfangastjóra.

Skýringar á viðveruskráningu í INNU:

Viðverukóðar:

  • M - Mæting
  • F - Fjarvist
  • S - Seinkoma
  • O - Frjáls mæting
  • X - Forföll kennara/uppákomur FS
  • A - Árekstur
  • B - Bætt upp mæting  

Forfallakóðar:

  • A - Árekstur
  • C - Vinna
  • E - Skýring
  • I - Íþróttaferð
  • K - Leyfi vegna landsliðsferða
  • L - Samþykkt leyfi
  • N - NFS leyfi
  • Ó - Ósamþykkt beiðni 

 

Nemendur geta sjálfir breytt upplýsingum um sig í Innu, þ.e. síma, netfangi o.s.frv.

SkraningiINNU