SPÆN1SS05 - Spænska 2

Undanfari : SPÆN1SO05
Í boði : Alltaf

Lýsing

Viðfangsefni undanfara áfangans eru rifjuð upp. Nemendur þjálfast í lesskilningi, hlustun, tali og ritun. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Nemendur þjálfast m.a. í að tjá sig um liðna atburði og bjarga sér við einfaldar, hversdagslegar aðstæður

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim orðaforða sem þarf til að geta lesið, hlustað á, skilið og rætt um einföldustu atriði og miðað við námsefni
  • helstu grundvallarþáttum spænsks málkerfis
  • Spáni, spænskumælandi löndum og einstökum þáttum spænskrar menningar
  • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt, t.d. einfaldar leiðbeiningar, upplýsingar og fyrirmæli
  • skilja einfalda texta af ýmsu tagi í nútíð og núliðinni tíð
  • fylgja söguþræði í einföldum bókmenntatexta
  • afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga og taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir með því að beita málsniði við hæfi
  • geta tjáð sig á einfaldan hátt um tilfinningar og viðhorf
  • geta ritað stutta texta í viðeigandi tíð eftir samhengi
  • geta dregið sjálfur ályktanir um málfræðilegar reglur og notkun þeirra

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja talað mál um kunnuglegt efni
  • skilja meginatriði texta sem innihalda algengan orðaforða
  • tjá sig munnlega við tilteknar aðstæður og beita viðeigandi málsniði
  • miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum, tilfinningum og persónulegri reynslu
  • rita einfalda texta um málefni og atburði í nútíð og þátíð
  • komast sjálfur að einföldum reglum með því að byggja á fyrri þekkingu

 

Grunnþættir menntunar

Læsi: Nemendur þjálfast í að skilja texta og myndmál í spænskumælandi efni. Nemendur fá innsýn í hvernig spænska sem tungumál mótar menningarskilning spænskumælandi samfélaga. Nemendur fá skilning á mismunandi beitingu tungumálsins í ólíkum menningarheimum spænskumælandi landa.

Sjálfbærni: Nemendur kynnast leiðum sem eru notaðar í spænskumælandi löndum til að takast á við vandamál hvað varðar sjálfbærni. Nemendur kynnast nýjum áskorunum hvað varðar sjálfbærni í tengslamyndun milli kynslóða í ýmsum spænskumælandi löndum nútímans.

Jafnrétti: Skoðuð er staða jafnréttis í spænskumælandi löndum, svo sem hvað varðar kynþætti, menningu og tungumál, sbr. menningu og bakgrunn frumbyggja í Suður-Ameríku.

Lýðræði og mannréttindi: Nemendur kynnast sögu nokkurra spænskumælandi landa og þróun þeirra hvað varðar lýðræði og mannréttindi.

Sköpun: Nemendur takast á við menningarheima spænskumælandi landa á fjölbreyttan hátt, svo sem í gegnum tónlist, myndbönd og texta.