RAFM3GD05 - Rafmagnsfræði 4

Undanfari : RAFM2GC05
Í boði : Haust

Lýsing

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur geti leyst einföld verkefni sem tengjast notkun á raforku og hvernig raforka breytist í ljós, hita og hreyfiorku. Farið er í uppbyggingu og virkni ýmissa véla, tækja og búnaðar og gerðar tengimyndir og kynnt teiknitákn fyrir þau. Kenndar eru jafngildismyndir fyrir rafrásir í jafnstraumskerfum og einfasa riðstraumskerfum. Farið er í mismunandi áraun rafbúnaðar við ræsingu, tómagang og fullt álag. Farið er í þriggja fasa rafbúnað og tengingar. Þá er fjallað um mælitæki og tengingu þeirra og leyst einföld verkefni er varða rekstur spenna, tækja og véla.


Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • jafngildismyndum jafnstraumskerfa ásamt táknum í teikningum
  • eiginleikum tækja og búnaðar í ræsingu og tómgangi
  • breytingu raforku í ljós, hita og hreyfiorku
  • tengimyndum þriggja fasa riðstraumsrása ásamt táknum í teikningum


Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta sér hermiforrit fyrir vélar og rásir
  • gera tengimyndir og jafngildismyndir
  • reikna álag fyrir mismunandi ræsingar véla og spenna
  • nota helstu mælitæki sem notuð eru við rekstur véla og spenna


Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • gera jafngildismyndir og lesa úr teikningum
  • velja ræsingu hreyfla við mismunandi notkun
  • gera bilanaleit og velja varbúnað
  • velja viðeigandi ræsibúnað
  • tengja á mismunandi gerðir rafvéla
  • velja mælitæki til mælinga í bilanaleit

 

Grunnþættir menntunar

Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.