Lýsing
Í þessum áfanga er lögð áhersla á tengingar og efnisval á meðalstórum boðskiptakerfum s.s. tölvukerfi, símalagnir, dyrasímakerfi, loftnetskerfi og ljósleiðara. Einnig verða tengd brunakerfi bæði Analog og rásastýrð. Gerðar verða mælingar og farið í bilanarleit í þessum kerfum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lagningu bruna og boðskiptalagna
- Kröfum um frágang á köplum í rennum, bökkum og stigum
- uppröðun í tengiskápa
- mismunandi gerðum kapla eftir aðstæðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tengja boðskiptalagnir við krosstengibretti (patcpanil) og annan endabúnað
- leggja og tengja tölvu, síma, hljóð, mynd og loftnetslagnir á fagmannlegan hátt
- setja upp og tengja mismunandi brunakerfi
- finna út bilanir og gera við þær
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tengja loftnetskerfi og gera mælingarskýrslu
- tengja dyrasímakerfi og mæla út bilanir
- tengja boðskiptalagnir og krosstengibretti
- gera mælingarskýrslu og útlitsmynd af skáp
- geta valið búnað í ljósleiðarakerfi og umgengist búnaðinn af þekkingu
- ganga frá lögnum að brunakerfum og viðverukerfum
- tengja stjórnstöðvar brunakerfa
Grunnþættir menntunar
Í þessum áfanga er unnið markvisst að því að efla faglæsi nemenda á táknkerfi, teikningar og tæknilegar upplýsingar. Lögð er rík áhersla á sköpun og lausnamiðaða hugsun þar sem nemendur hagnýta þekkingu sína í raunhæfum verkefnum. Sjálfbærni og fagleg vinnubrögð eru fléttuð inn í námið með áherslu á skynsamlega nýtingu efnis og varanlegar lausnir. Öryggi er ætíð í forgrunni til að tryggja heilbrigði og velferð í vinnuumhverfinu. Lýðræði og mannréttindi birtast í því að ríkt samráð er haft við nemendur; þeim er tryggt rými til að veita ábendingar, eiga uppbyggilegt samtal við kennara um tímasetningar á verkefnum og prófum. Loks er jafnrétti lagt til grundvallar í öllu starfi, þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri til að dafna og eflast sem fagaðilar í hvetjandi námsumhverfi.