Lýsing
Í áfanganum vinna nemendur sjálfstætt að eigin hönnun, sniðum og saum. Kennari stendur hjá, aðstoðar og segir til. Nú ættu nemendur að geta unnið sjálfstætt með teikningu og verklýsingar. Nemendur koma með undirbúin snið í kennslustund. Nýjasta tíska í saumtækni er skoðuð og gerðar eru tilraunir. Saumuð er yfirhöfn eða kjóll. Handsaumur er unninn heima. Vettvangsferðir og sýningar verða á verkefnum nemenda.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- útfærslu grunnsniða
- flóknari saumtækni
- saum og fóðri
- verklýsingum og flötum teikningum
- tískuteikningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna við útfærslur á flóknari sniðum og breytingum á þeim
- sauma og fóðra yfirhöfn
- gera eigin vinnulýsingar og framkvæmdaáætlun
- fara eftir vinnulýsingum
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- vinna sjálfstætt við snið og sniðútfærslur
- sauma fóðraða yfirhöfn eða kjól
- nota og gera vinnulýsingar
- temja sér vönduð vinnubrögð
Grunnþættir menntunar
Læsi í fatahönnun felur í sér að nemendur læra að lesa í form, liti, snið og tísku ásamt því að tjá hugmyndir sínar á skapandi hátt með skissum, sniðagerð og saumaskap. Þeir efla sjónrænt læsi, sköpunargáfu og hæfni til að þróa og miðla eigin hönnun.
Sjálfbærni í fatahönnun felur í sér ábyrga nýtingu efna, endurvinnslu og minni sóun. Nemendur læra um áhrif tísku á umhverfi og samfélag og þjálfast í að taka meðvitaðar og skapandi ákvarðanir í hönnunarferlinu.
Heilbrigði og velferð í fatahönnun felur í sér jákvætt og skapandi vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á öryggi, vellíðan, góða líkamsbeitingu og sjálfstraust nemenda.
Lýðræði og mannréttindi í fatahönnun felast í því að nemendur læra að virða ólíkar hugmyndir, vinna saman og taka ábyrgð á eigin námi og sköpun. Áhersla er lögð á jafnræði, virðingu og að allir fái tækifæri til að tjá sig og þróa eigin stíl og hugmyndir.
Jafnrétti í fatahönnun snýst um að allir nemendur hafi sömu tækifæri til að nýta hæfileika sína og tjá sig á sinn hátt. Lögð er áhersla á virðingu fyrir fjölbreytileika og jafnræði í bæði námi og skapandi vinnu, óháð kyni, uppruna eða getu.
Sköpun í fatahönnun felur í sér að nemendur þróa hugmyndir og lausnir með gagnrýninni hugsun, frumleika og tilraunum.