Lýsing
Unnið er markvisst með alla færniþættina fjóra (lesskilning, hlustun, ritun og tal). Lögð er áhersla á að gera nemendur færa í flestan sjó í dönsku samfélagi. Lesskilningur er þjálfaður með efni á netinu s.s. með lestri á fréttum líðandi stundar og gera nemendur þannig meðvitaða um danskt samfélag eins og það birtist þá stundina. Danskar bókmenntir með myndmáli eru lesnar, ræddar og lagðar til grundvallar í ritun. Hlustun er ekki þjálfuð með sérstökum æfingum eins og í undanförum heldur með tilvísun til danskra sjónvarpsþátta, frétta og fréttaskýringa í sjónvarpi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölmiðlatengdu efni
- danskri menningu
- dönsku sjónvarpsefni með dönskum undirtextum og án þeirra
- bókmenntatextum s.s. skáldsögur sem eru litaðar myndmáli ýmis konar
- danskri málnotkun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leita af dönsku efni af vefsíðum
- lesa af nokkru öryggi danska vísinda- og fræðitexta
- lesa á milli lína og átta sig á dýpri merkingu ritaðs máls
- lesa danska texta sér til yndisauka
- tjá hugsun sína í rökstuddu máli
- beita meginreglum danskrar málfræði og setningarfræði í rituðu máli
- hlusta á danskt tal og geti gert útdrátt úr efninu
- nota orðaforða sem unnið hefur verið með í nýju samhengi
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta lesið og skilið efnislega flókna texta og ráðið við sérhæfða texta með hjálp orðabókar
- geta tjáð sig skriflega á skýrum og samfelldum texta af tiltekinni lengd og geti þannig komið skoðun sinni á framfæri
- geta hlustað eftir ákveðnum upplýsingum og náð aðalatriðum í fréttum og fréttaskýringarþáttum um ákveðin efni
- geta rætt hiklaust um málefni sem hann þekkir til
- geta tekið þátt í samræðum þriggja eða fleiri
Grunnþættir menntunar
Læsi: Nemendur þjálfast í að skilja texta og myndmál á dönskuefni. Nemendur fá innsýn í hvernig danska sem tungumál mótar menningarskilning í dönsku samfélaga. Nemendur fá skilning á mismunandi beitingu tungumálsins.
Sjálfbærni: Nemendur kynnast leiðum sem eru notaðar í dönsku til að takast á við vandamál hvað varðar sjálfbærni. Nemendur kynnast nýjum áskorunum hvað varðar sjálfbærni í tengslamyndun milli kynslóða í Danmörku nútímans.
Lýðræði og mannréttindi: Nemendur kynnast sögu Danmerku og þróun hvað varðar lýðræði og mannréttindi
.Jafnrétti: Skoðuð er staða jafnréttis í Danmörku, svo sem hvað varðar innflytjendur, menningu og tungumál, sbr. menningu og bakgrunn þeirra.
Sköpun: Nemendur takast á við texta á fjölbreyttan hátt, svo sem í gegnum tónlist, myndbönd og texta.