VFOR3LO05 - Vefforritun-Lokaverkefni

Lokaverkefni

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: VFOR3BE05
Farið er nánar í hlutbundna forritun og nemendur vinna lokaverkefni þar sem byggt er á þekkingu frá fyrri áföngum. Nemendur búa til vefsíðu frá grunni eða með notkun ramma (e. frameworks). Nemendur læra að nota hluti sem hjálpa til við uppsetningu og viðhald gagnagrunna fyrir vefsíðu ásamt því að kynnast að senda gögn í rauntíma til notenda.

Þekkingarviðmið

  • Skipulagsaðferðum fyrir stór forritunarverkefni
  • Gagnagrunnsuppsetningu fyrir stórt verkefni
  • Uppsetningu vefsíðu á server

Leikniviðmið

  • Setja upp skipulagsskjal fyrir tímabil sem verkefni er unnið á
  • Setja upp prótótýpur fyrir verkefni
  • Setja upp myndrit fyrir uppsetningu gagnagrunns fyrir verkefni
  • Velja sér réttu verkfærin út frá völdu verkefni

Hæfnisviðmið

  • Vinna sjálfstætt að stóru forritunarverkefni og ná að útfæra hugmynd
  • Skipulagninu á tíma fyrir litla og stóra hluti tengda verkefni
  • Taka hugmynd, útfæra hana og koma henni út fyrir alla til að nota
Nánari upplýsingar á námskrá.is