FORR2LE05(FS) - Leikjaforritun fyrir byrjendur

Leikjaforritun 1

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Enginn
Markmið áfangans er að nemendur kynnist hugtökum forritunar og þjálfist í að skrifa kóða með lykkjum, föllum, og skilyrðissetningum. Í áfanganum munu nemendur kynnast grunnatriðum forritunar og er þá leitast við að nota myndræna miðlun á efninu. Nemendur munu kynnast því hvernig hægt er að nota mismunandi verkfæri og búa þannig til sín eigin forrit. Nemendur læra að þekkja einföld forritunarhugtök og geta lýst í stuttu máli hvað forritun er og hvernig hún virkar. Nemendur kynnast fjórum mismunandi aðferðum til að búa til forrit.

Þekkingarviðmið

  • Skilyrðissetningum, föllum og breytum
  • Uppbyggingu einfaldra forrita
  • Hvernig kóði verður að forriti
  • Atburðir í forriti

Leikniviðmið

  • Nota föll í forritun
  • Nota atburði í forritun
  • Nota skilyrðissetningar í forritun

Hæfnisviðmið

  • Búa til einfalda leiki með opnum lausnum
  • Búa til einföld forrit í síma með opnum lausnum
  • Búa til einfald forrit í því forritunarmáli sem kennt er í áfanganum
Nánari upplýsingar á námskrá.is