TEIK2MÁ05 - Málun

Málun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnáfangi, enginn undanfari.
Í þessum grunnáfanga vinna nemendur á kerfisbundinn hátt með akrýl málningu ýmist á pappír eða striga. Lögð er áherla á að nemendur öðlist þekkingu á blöndunareiginleikum. Í litafræðinni kynnast nemendur grundvallaratriðum í meðferð lita þar sem þeir kanna samspil lita, virkni þeirra og áhrif. Í lokin vinna nemendur markvisst með fjölbreytta liti og litablöndun með það í huga að kanna möguleika sína á persónulegri tjáningu í málverki. Verkefni útskýrð og lögð fyrir. Einstök heimaverkefni. Skissubók – nemendur vinna sjálfstætt í skissubók heima og í tímum. Nemendur fari a.m.k. einu sinni á myndlistarsýningu og skila verkefni um sýninguna.

Þekkingarviðmið

  • Blöndun grunnlita í litatóna og hugtökum þar að lútandi
  • Að beita litum á fjölbreyttan hátt á ýmis konar efni
  • Tóni, blæ, ljósmagni og litablöndun
  • Nýtingu litaskalans á áhrifaríkan hátt í einföldum myndum
  • Greiningu áhrifa lita og litasamsetningar í mismunandi samhengi
  • Greiningu með vísan til táknfræði, á hvaða möguleg áhrif samsetning lita og forma getur haft
  • Kenningum/lögmálum litafræðinnar, litahringnum, andstæðum litum, heitum og köldum litum
  • Litgreiningu
  • Áhrifum ljóss og skugga á liti
  • Blæbriðgum litar
  • Einlit

Leikniviðmið

  • Blanda liti og ná fram mismunandi tónum
  • Nýta sér hin ýmsu efni til myndlistar
  • Leita sér heimilda og nýta sér þær
  • Beita lögmálum litafræðinnar við blöndun lita
  • Finna og greina liti í umhverfinu
  • Sjá andstæða liti í skuggum
  • Framkvæma tilraunir og setja þær fram á frambærilegan og persónulegan hátt

Hæfnisviðmið

  • Geta blandað hvern þann lit sem hann finnur í umhverfi sínu
  • Nýta sér lögmál andstæðra lita; hvernig þeir vinna saman og hafa örvandi áhrif á virkni hver annars
  • Nýta áhrif litar á myndbyggingu og áhrif á rýmiskennd
  • Geta greint mismunandi litbrigði í einföldum lit
Nánari upplýsingar á námskrá.is