FORR2RO05 - Róbótafræði 1

Róbótafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FORR3PH05
Nemendur munu setja upp sínar eigin Raspberry PI vélar sem þeir munu svo nota til að stjórna mótorum, ljósnóðum og fleiru. Við munum setja vélina í fjarstýrðan bíl, og getur vélin þ.a.l. stjórnað bílnum. Við munum svo skrá okkur inn í vélina í gegnum aðra Raspberry PI tölvu með notkun SSH. Þar með stjórnum við bílnum fjarrænt í gegnum internetið. Nemendur munu læra að búa til Python scriptur sem geta greint hvað það er sem bíllinn er að sjá sem og tekið ákvarðanir fyrir bílinn byggðar á því. Þekking í Linux og Python nýtist vel í þessu námskeiði.

Þekkingarviðmið

  • Tölvukerfum almennt
  • Linux
  • Þróun róbóta

Leikniviðmið

  • Skrifa tölvuforrit sem stjórna vélum
  • Setja saman vélar

Hæfnisviðmið

  • Þróa vélmenni framtíðarinnar
  • Sjá tækifæri í kringum þessa nýju tækni
  • Vera virkur þáttakandi í sjálfvirknivæðingunni sem blasir við
Nánari upplýsingar á námskrá.is