STÆR1PA05 - Stærðfræði

Algebra, Prósentur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Nemendur hafi hæfnieinkunn D eða C úr grunnskóla.
Talnareikningur: Unnið með talnaskilning og undirstöðuatriði í almennum reikningi. Prósentureikningur: Unnið með hugtakið prósenta og léttur prósentureikningur æfður. Einföld algebra og léttar jöfnur: Unnið með stæður og jöfnur.

Þekkingarviðmið

  • samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu heilla talna og almennra brota
  • talnakerfinu, notkun sviga og röð aðgerða
  • námundun
  • að prósenta er hluti af hundraði
  • einföldum prósentureikningi
  • undirstöðuatriðum í algebru og jöfnureikningi.

Leikniviðmið

  • reikna í huganum
  • reikna dæmi með svigum og nota reglur um röð aðgerða
  • beita helstu aðgerðum á heilar tölur og brot
  • finna hluta, heild og prósentu.
  • hækka og lækka tölu um ákveðna prósentu
  • einfalda léttar stæður og leysa léttar jöfnur
  • margfalda inn í sviga og taka út fyrir sviga
  • einangra bókstaf út úr þriggja bókstafa jöfnu

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar skipulega
  • skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu til notkunar í áframhaldandi námi
  • takast á við stærðfræðileg verkefni í daglegu lífi með opnum og jákvæðum huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is