ENSK1MR05 - Hægferð, fyrri hluti

Málfræði og ritun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
ENSK1MR05 samsvarar hæfnisþrepi A2 í evrópska tungumálarammanum. Nemendur bæta við þekkingu sína á helstu málfræðiatriðum og beita málfræðireglum við ritun. Nemendur bæta orðaforða og þjálfast í að tjá sig á talaðri ensku á einfaldan máta. Nemandinn kynnist menningu enskumælandi þjóða.

Þekkingarviðmið

  • grunnhugtökum í málfræði (t.d. tíðir, orðaflokkar, greinarmerki o.s.frv.)
  • grunnatriðum í ritun
  • byggingu efnisgreina
  • mismunandi menningarheimum
  • fjölbreyttari orðaforða

Leikniviðmið

  • lesa fjölbreytta texta (smásögur, greinar og lengri texta, s.s. skáldsögur)
  • tjá lesskilning í rituðu máli
  • tjá sig munnlega um skoðanir sínar sem og ræða málefni líðandi stundar
  • hlusta eftir og skilja fjölbreytta texta frá mismunandi menningarheimum
  • halda uppi einföldum samræðum

Hæfnisviðmið

  • túlka megininnhald lesinna texta
  • halda stutta kynningu fyrir samnemendur
  • tjá skoðun sína á gagnrýninn hátt
  • taka þátt í umræðum um alþekkt eða einföld málefni
  • tjá sig á skýran hátt í ræðu og riti með noktun fjölbreyttari orðaforða
  • vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
Nánari upplýsingar á námskrá.is