VIFR1VV05(AV) - Íslensk stjórnskipan og réttarkerfi

Stjórnskipan, réttarkerfi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Kynnt eru grundvallaratriði íslenskrar stjórnskipunar og réttarkerfis. Fjallað er um grundvallarhugtök og fræðikerfi lögfræðinnar, sérstaklega um hugtakið réttarheimild og allar helstu tegundir réttarheimilda sem beitt er í íslenskum rétti. Áhersla er lögð á kynningu á lögum og reglum sem tengjast viðskiptalífinu s.s. reglur sem sem varða samninga, umboð og aðra löggerninga. Einnig er fjallað um reglur sem varða kröfur og skuldbindingar. Áfanginn miðar að því að gefa nemandanum innsýn í umfang löggjafar á þessu sviði og að hann þekki helstu meginreglur hennar. Fjallað er um siðfræði með áherslu á viðskiptasiðfræði og sifja- og erfðarétt.

Þekkingarviðmið

  • grundvallaratriðum í sambandi við löggjöf og aðrar réttarheimildir
  • meginatriðum í íslenskri stjórnskipan
  • meginreglum í íslensku réttarfari og helsta farvegi mála í gegnum dómstóla og aðrar stofnanir réttarkerfisins
  • almennum reglum sem varða samninga, umboð og aðra löggerninga
  • lögum um lausafjárkaup og fasteignakaup
  • helstu lögum og reglum er varða kröfur og skuldbindingar.
  • helstu lögum um skaðabætur og vátryggingar
  • hinum ýmsu rekstrarformum í atvinnurekstri hvað snertir ábyrgð eigenda
  • hagnýtri siðfræði og gildi siðfræðikenninga í viðskiptum og í daglegu lífi.

Leikniviðmið

  • nota grunnþekkingu í lögfræði
  • leita sér upplýsinga um lausafjárkaup og fasteignakaup
  • leita sér uppýsinga um skaðabætur og vátryggingar
  • leita sér upplýsinga varðandi erfðarétt, hjúskaparlög og barnarétt
  • móta sér eigin skoðanir um siðferðileg viðfangsefni

Hæfnisviðmið

  • þekkja rétt sinn og skyldur í þjóðfélaginu
  • vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðissamfélagi
  • beita grunnþekkingu í lögfræði við lausn mála sem tengjast samningum og öðrum löggerningum
  • setja fram eigin skoðanir um siðferðileg viðfangsefni á skipulagðan og gagnrýninn hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is