LOKA3LV05(SB) - Lokaverkefni

ferlið frá hugmynd að fullbúnu verki

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Nemandinn skal hafa lokið að minnsta kosti 140 f-einingum til stúdentspróf og VITA2VT05.
Áfanginn er tekinn á síðasta námsári. Nemandi velur sér viðfangsefni og skipuleggur í samráði við kennara sem leiðbeinir honum í gegnum áfangann. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Útfærsla verkefnanna getur verið mismunandi. Afrakstur allra lokaverkefna verður kynntur á opnu málþingi í lok annar og birtur á heimasíðu skólans. Möguleiki er að taka áfangann sem ritgerðar- eða rannsóknaráfanga í faggrein sem kennd er innan skólans

Þekkingarviðmið

  • helstu reglur um heimildanotkun og þau kerfi sem eru notuð
  • helstu rannsóknaraðferðum
  • helstu aðferðum við framsetningu og úrvinnslu gagna í tölvu
  • helstu aðferðum við heimildaleit

Leikniviðmið

  • skipuleggja verkefni með ábyrgum og sjálfstæðum hætti
  • lesa fræðilegan texta og vinna úr honum samkvæmt viðurkenndum reglum um meðferð heimilda
  • tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigið verkefni
  • taka þátt í samvinnu þegar við á

Hæfnisviðmið

  • takast á við ný verkefni og breyta hugmynd í afurð
  • vera meðvitaður um eigin styrkleika og veikleika
  • geta kynnt verkefni sín fyrir framan aðra
  • sýna frumkvæði og skapandi hugsun
Nánari upplýsingar á námskrá.is