UPPL1FB05 - Upplýsingatækni - Fornám B

B hluti, Upplýsingatækni, fornám

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: UPPL1FA05
Nemendur kynnist almennri notkun á PC-tölvum. Í áfanganum læra þeir að nota ritvinnslu- og glærugerðarforrit til samskipta og vinnu með upplýsingar og gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu til verkefnaskila. Nemendur verði færir um að vinna ritgerð með forsíðu, efnisyfirliti og heimildaskrá í sama skjali. Þeir útbúa ferilskrá og setja upp náms- og starfsumsókn í ritvinnslu. Kennd er blindskrift í vélritunarforriti á Netinu. Markmið námsins er að stuðla að færni nemenda í fjölbreyttu náms- og starfsumhverfi með hjálp upplýsingatækninnar.

Þekkingarviðmið

  • aðgerðum í helstu forritum til framsetningar og miðlunar texta
  • textavinnslu og framsetningu texta
  • höfundarrétti og notkun heimilda
  • siðfræði og siðferði Netsins (upplýsinga- og tölvusiðferði)

Leikniviðmið

  • markvissri notkun póst- og samskiptaneta
  • mótun og framsetningu á texta á ýmsan hátt
  • aðgerðum í helstu forritum hugbúnaðar
  • meðferð heimilda og framsetningu á þeim

Hæfnisviðmið

  • miðla, varðveita, skapa og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt
  • vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðla að læsleika hans
  • setja upp heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s. efnis-, mynda- og töfluyfiliti
  • stunda örugg netsamskipti og sýni þar með gott siðferði
Nánari upplýsingar á námskrá.is