UPPL1FA05 - Upplýsingatækni

A-hluti, Upplýsingatækni, fornám

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Nemendur kynnist almennri notkun á PC tölvum. Í áfanganum læra þeira að nota ritvinnslu og glærugerðarforrit til samskipta og vinnu með upplýsingar og gögn á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu til verkefnaskila. Nemendur verði færir um að vinna ritgerð með forsíðu, efnisyfirliti og heimildaskrá í sama skjali. Þeir búa til ferilskrá og setja upp náms- og starfsumsókn í ritvinnslu. Kennd er blindskrift í vélritunarforriti á Netinu. Markmið námsins er að stuðla að færni nemenda í fjölbreyttu náms og starfsumhverfi með hjálp upplýsingatækninnar.

Þekkingarviðmið

  • aðgerðum í helstum forritum til framsetningar og miðlunar á texta
  • textavinnslu og framsetningu texta
  • höfundarrétti og notkun heimilda
  • siðfræði og siðferði Netsins

Leikniviðmið

  • markvissri notkun póst og samskiptaneta
  • mótun og framsetningu á texta á ýmsan hátt og átti sig á læsileika hans
  • aðgerðum í helstu forritum hugbúnaðar, svo sem framsetningu og ritvinnslu
  • meðferð heimilda og framsetningu á þeim

Hæfnisviðmið

  • meta, varðveita, skapa og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan og skilvirkan hátt
  • vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðla að læsileika hans
  • setja upp heimildaritgerð ásamt yfirlitum af ýmsu tagi, s.s efnis-, mynda og töfluyfirliti
  • stunda örugg netsamskipti og sýni þar gott siðferði
Nánari upplýsingar á námskrá.is