ÍSLE1FA05 - Íslenska - Fornám A hluti

Fornám A-hluti

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur treysti á kunnáttu sína á öllum sviðum lestrar. Nemendur fá þjálfun í fjölbreyttri ritun og tjáningu. Nemendur læra að meta góða málnotkun og öðlast trú á eigin málhæfni í ræðu og riti.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi lestrar
  • mismunandi aðferðum við lestur
  • mikikvægi þess að geta áttað sig á aðalatriðum í texta
  • mikilvægi réttritunar
  • helstu hjálpargögnum við ritun

Leikniviðmið

  • nota mismunandi lestrartækni við lestur mismunandi texta
  • taka aðalatriði úr texta og átta sig á meginefni hans
  • nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða

Hæfnisviðmið

  • ákvarða hvaða lestraraðferðum skuli beitt við hinar ýmsu textagerðir
  • dýpka lesskilning sinn
  • styrkja eigin mál- og ritfærni
  • túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
  • endursegja lengri sögu á sannfærandi hátt og lýsa flóknum aðstæðum með skýrum og einföldum hætti án málalenginga
Nánari upplýsingar á námskrá.is