HBFR1HH05(FÁ) - Heilbrigðisfræði

forvarnir, heilbrigðisvandamál, heilbrigðisþjónusta

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum er heilbrigðishugtakið skilgreint. Lögð er áhersla á hlutverk og sögulega þróun heilbrigðisfræði og áhrif hennar á nútíma heilbrigðismál. Fjallað er um helstu heilbrigðisvandamál í nútíma samfélagi og forvarnir gegn þeim. Áhersla er lögð á forvarnarstarf gegn sjúkdómum og slysum, áhættuþætti sem þeim tengjast og hvernig einstaklingar geta haft áhrif á eigið heilbrigði. Fjallað er um skipulag heilbrigðisþjónustunnar og helstu stofnanir, sem móta stefnu í forvörnum, heilsueflingu og heilbrigðisfræðslu. Einnig er fjallað um smitsjúkdómavarnir, kynsjúkdómavarnir, tóbaksvarnir, áfengis- og vímuefnavarnir, geðvernd, beinvernd og mæðra- og ungbarnavernd. Fjallað er um umhverfisheilbrigðisfræði og tengsl mengunar og sjúkdóma skoðuð ásamt helstu mengunarvörnum.

Þekkingarviðmið

  • heilbrigðishugtakinu
  • sögulegri þróun heilbrigðisfræði og áhrifum á heilbrigðismál
  • helstu heilbrigðisvandamálum í nútíma samfélagi og forvörnum gegn þeim
  • uppbyggingu og skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi
  • aðferðum og aðgerðum sem stuðla að heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma
  • ábyrgð einstaklingsins á eigin heilsu
  • helstu umhverfisþáttum sem ógnað geta heilbrigði

Leikniviðmið

  • lýsa uppbyggingu og skipulagi heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi
  • afla á fjölbreyttan hátt þekkingar um aðgerðir og aðferðir sem stuðla að slysavörnum, heilsueflingu og forvörnum sjúkdóma
  • sýna í verki að hann tekur ábyrgð á eigin heilsu
  • gera grein fyrir umhverfisþáttum sem geta ógnað heilbrigði manna

Hæfnisviðmið

  • útskýra heilbrigðishugtakið út frá mismunandi menningarheimum
  • greina samspil lífsstíls og heilsu
  • greina eigin lífsstíl og áhættuþætti tengda honum
  • álykta um áhrif heilbrigðisfræðinnar á þróun heilbrigðismála í nútímanum
  • miðla á skapandi hátt upplýsingum um helstu heilbrigðisvandamál og forvarnir þeirra
Nánari upplýsingar á námskrá.is