ÍÞRG2OP04 - Opinn íþróttagreinaáfangi

opinn íþróttagreinaáfangi

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Nemendur fá trausta þekkingu á tiltekinni íþróttagrein og eru búnir undir þjálfunar- og leiðbeinendastörf hjá íþróttahreyfingunni, í frjálsri félagastarfsemi eða í frístundastarfi. Gert er ráð fyrir að hægt sé að kenna íþróttagrein sem sérstakur áhugi er á eða hentar vel aðstæðum eða einstökum skólum. Dæmi um íþróttagreinar: - Badminton - Borðtennis - Fimleikar - Fjallganga - Frjálsar íþróttir - Glíma - Golf - Hjólreiðar - Júdó - Karate - Ólympískar lyftingar - Skautar - Skíði - Skvass - Sund - Taekwondo - Tennis - Þríþraut

Þekkingarviðmið

  • hvernig beri að leiðbeina börnum og unglingum um undirstöðuatriðin í viðkomandi grein
  • helstu þjálfunaraðferðum í íþróttagreininni
  • þeim mun sem er á þjálfun barna og fullorðinna í greininni

Leikniviðmið

  • stunda íþróttagreinina og öðlast góðan tæknilegan grunn í greininni
  • taka þátt í fjölbreyttum æfingum og leikjum sem tilheyra greininni

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja þjálfun í íþróttagreininni fyrir börn og unglinga
  • nýta sér upplýsingatækni við skipulagningu þjálfunar
Nánari upplýsingar á námskrá.is