ÍÞRG2KÖ04 - Körfuknattleikur

körfuknattleikur

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði körfuknattleiks. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikur sé greindur í sundur í smáar einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur

Þekkingarviðmið

  • tækniþáttum körfubolta
  • leikfræði
  • leikreglum
  • þjálfunaraðferðum
  • kennslufræði
  • skipulagi á þjálfun
  • sögu körfuknattleiks
  • þjálfa körfuknattleik

Leikniviðmið

  • útbúa tímaseðil
  • eiga samskipti við iðkendur og alla þá er koma að greininni
  • framkvæma grunnæfingar í greininni

Hæfnisviðmið

  • dæma körfuknattleik
  • geta þjálfað og leiðbeint börnum
  • geta útbúið þjálfunaráætlanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is