HAND2HY05(SB) - Handmennt

Hannyrðir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum kynnast nemendur nokkrum undirstöðugreinum handmennta. Nemendur læra að nota áhöld og tæki í greininni. Nemendur vinna prufur meðan þeir eru að ná valdi á grunnþáttunum í aðferðum og síðan nýta þeir sér þekkingu sína í eigin útfærslur og hönnun. Nemendur þurfa að temja sér vönduð og sjálfstæð vinnubrögð. Áhersla á prjón og hekl. Til viðbótar má velja útsaum, leðurvinnslu og/eða bútasaum

Þekkingarviðmið

  • grunnatriðum í völdu handverki, t.d. prjóni, hekli, bútasaumi og útsaumi í vél og í höndum
  • frágangi á verkefnum
  • a.m.k. þrenns konar handverksaðferðum sem þekktar eru í heimi handverks og hönnunar í nútímanum

Leikniviðmið

  • nota grunnaðferðir í ýmsum handverksaðferðum
  • nýta sér mismunandi hráefni í vinnslu nytjahluta eða myndverks
  • búa til vinnulýsingu af eigin hönnun og handverki

Hæfnisviðmið

  • leita nýrra hugmynda til að iðka handmenntir
  • geta yfirfært hugmynd sína í unninn hlut
  • útfæra verkefni eftir vinnulýsingu
  • vanda frágang og vinnubrögð
Nánari upplýsingar á námskrá.is