ÍÞRG2BL04 - Blak

blak

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í blaki. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur í sundur í smá einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur þjálfist í kennslu blaks hjá börnum.

Þekkingarviðmið

  • tækniþáttum blaks
  • leikfræði
  • leikreglum
  • þjálfunaraðferðum
  • kennslufræði
  • skipulagi á þjálfun
  • sögu blaksins

Leikniviðmið

  • framkvæma grunnæfingar í blaki
  • eiga samskipti við iðkendur og aðra sem koma að greininni
  • útbúa tímaseðla
  • beita mismunandi þjálfunaraðferðum háð aldri

Hæfnisviðmið

  • þjálfa og leiðbeina börnum í blaki
  • geta útbúið áætlanir
  • dæmt blak
Nánari upplýsingar á námskrá.is