MYNL2MA05 - Módelteikning og líkamsbygging

líkamsbygging, módelteikning, sjónskynjun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SJÓN1TF05 og SJÓN1LF05
Nemandinn þjálfar sig í að umbreyta þrívíðu formi mannslíkamans í tvívíða teikningu. Samvinna sjónskynjunar og hreyfingar handa er efld á ýmsa vegu. Nemandinn tileinkar sér aðferðir til að meta stærðir, stefnu, hlutföll og afstöðu mismunandi líkamsparta og raða saman í heildarmynd. Hann rannsakar á agaðan hátt byggingu og mótun forma mannslíkamans þar sem áhersla er á jafnvægi, hlutföll, hreyfingu og innsýn í þann samhljóm sem er milli módelteikningar og beina og vöðvabyggingar. Nemandinn beitir einnig frjálsri teikningu þar sem leikur, túlkun og tjáning er í forgrunni.Teiknað og mótað er eftir lifandi fyrirmynd, beinagrind og tvívíðum myndum t.d. með blýanti, kolum, bleki og leir. Í tengslulm við verkefnavinnu skoðar nemandinn dæmi úr myndlistasögu og samtímalist þar sem mannslíkaminn er viðfangsefnið. Hann vinnur sjálfstætt að nánari skoðun á módeli og teiknistíl milli kennslustunda og ígrundar stöðugt verk sín í samvinnu við aðra nemendur og kennara.

Þekkingarviðmið

  • samvinnu sjónskynjunar og hreyfingar handar í teikningu
  • jafnvægi, hlutföllum, hreyfingu og mótun forma mannslíkamans
  • samhljómi milli módelteikningar og beina- og vöðvabyggingar mannslíkamans
  • aðferðum til að meta jafnvægi, hlutföll, hreyfingu og afstöðu mismunandi líkamshluta
  • hvað er ólíkt með rannsóknarvinnu og frjálsri teikningu
  • hvernig nokkrir listamenn hafa unnið með mannslíkamann í sögunni og samtímanum

Leikniviðmið

  • hreyfa teikniáhald í samræmi og samfellu við skynjun sína
  • teikna og móta hreyfingu í mismunandi líkamsstöðu í jafnvægi og réttum hlutföllum
  • móta megin form líkamans
  • beita hjálparaðferðum til að meta jafnvægi, hlutföll, hreyfingu og afstöðu mismunandi líkamshluta
  • byggja teikningu sína á rannsóknarvinnu á mannslíkamanum og verkum annarra
  • skynja og túlka það sem hann sér og upplifir

Hæfnisviðmið

  • vinna að ýmsum ólíkum verkefnum í módelteikningu
  • koma auga á hluti/þætti í umhverfi sínu sem tengjast módelteikningu og vinna með þá á eigin forsendum
  • nýta verk annarra listamanna sem innblástur fyrir eigin verk
  • taka virkan þátt í umræðu um verk sín og annarra
  • ígrunda verk sín og vinnuferli og ræða við aðra
Nánari upplýsingar á námskrá.is