SAGA2KN05(SB) - Hvernig knattspyrna stjórnar heiminum

Knattspyrna

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SAGA2IN05
Í áfanganum er fjallað um sögu og þróun knattspyrnunnar og sérstaklega sögu og þróun knattspyrnuáhangenda frá upphafi til dagsins í dag. Efnið er skoðað út frá mörgum hliðum. Áfanginn er samvinnuverkefni kennara og nemenda þar sem mikið er lagt upp úr sjálfstæði og virkni nemenda. Nemendur tileinka sér vinnubrögð sagnfræðinnar í gegnum verkefnavinnu. Við verkefnavinnuna er lögð áhersla á að nemendur geti nýtt sér þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér til að geta miðlað henni á frumlegan, fjölbreyttan og skapandi hátt í gegnum ólík miðlunarform. Sérstök áhersla er á að efla nemendur í samvinnu. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur taki ábyrgð á eigin námi og geti metið eigið framlag og annarra á uppbyggilegan hátt með fjölbreyttum matsaðferðum.

Þekkingarviðmið

  • hugtakinu nýrasimsa
  • deilum trúarhópa í borgum og löndum
  • ólíkum menningarkimum sem tengjast knattspyrnu
  • áhrifum mannkynssögunnar á þróun knattspyrnunnar og knattspyrnustuðningsmanna
  • mismunandi sjónarhornum á sögu knattspyrnunnar, t.d. eftir löndum/landsvæðum og kynjum

Leikniviðmið

  • afla sér fjölbreyttra heimilda um mismunandi viðfangsefni
  • skoða viðfangsefnið út frá mismunandi sjónarhornum
  • lesa og skilja fjölbreytta texta bæði á íslensku og erlendum tungumálum
  • nota heimildir á viðurkenndan hátt
  • miðla efni á fjölbreyttan og skapandi hátt
  • vinna jafnt sjálfstætt og með öðrum að verkefnum
  • meta eigið framlag og framlag annarra með fjölbreyttum aðferðum

Hæfnisviðmið

  • nota viðkenndar aðferðir við að setja hugðarefni sín fram
  • miðla fróðleik á áhugaverðan og fjölbreyttan hátt
  • meta þróun knattspyrnunnar frá upphafi til dagsins í dag
  • skoða sögu knattspyrnunnar frá mörgum sjónarhornum
  • vinna með öðrum að sameiginlegu markmiði
  • meta vinnu sína og annarra á uppbyggilegan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is