USFS2AD04(SS) - Uppsetning forrita og stýrikerfa 3

Active Directory

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: USFS2NS04
Nemendur leysa raunveruleg verkefni sem koma upp innan veggja skólans eins og viðhald á nemendavélum og uppsetning þeirra. Uppsetning á stýrikerfum í gegnum Virtualbox skoðuð og framkvæmd. Nemendur læra uppsetningu og rekstur á Windows Small Business Server. Nemendur kynnast uppbyggingu Windows Server, aðgangsstjórnun notenda og hópa ásamt reglustýringu. Exchange Server verður einnig settur upp og prentun yfir innra net verður skoðuð sérstaklega. Notendaforrit sem notuð eru við daglegan rekstur netkerfa skoðuð.

Þekkingarviðmið

  • hvernig Active Directory virkar
  • hvernig setja á upp Active Directory á netþjónum
  • hvernig best er að haga viðhaldi á Active Directory
  • öryggismálum er snerta Active Directory

Leikniviðmið

  • hönnun á Active Directory
  • uppsetningu á Active Directory og öllum þáttum þess
  • kerfisstjórn með Active Directory

Hæfnisviðmið

  • setja upp nýtt Active Directory á netþjóni
  • viðhalda Active Directory á netþjóni
  • vera fær um að beita Group Policy á innra neti
Nánari upplýsingar á námskrá.is