HJÚK2TV05(AV) - Hjúkrun fullorðinna 2

taugakerfi, verkir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: HJÚK1AG05 og HJÚK2HM05
Fjallað er um hjúkrun sjúklinga með bráða- og langvinna sjúkdóma sem tengjast eftirtöldum kerfum: taugakerfi, innkirtlakerfi, ónæmiskerfi og stoðkerfi. Auk þess er fjallað um smitgát, sár og sárameðferð, verki og verkjameðferð. Í áfanganum er lögð áhersla á tengingu fræðilegrar þekkingar við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar.

Þekkingarviðmið

  • áhrifum bráðs og langvinns heilsubrests á sjálfsmynd og líðan skjólstæðinga
  • mikilvægi hjúkrunarskráningar
  • hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í tauga-, innkirtla-, ónæmis- og stoðkerfi
  • smitgát, sárum og sárameðferð, verkjum og verkjameðferð
  • algengum sáraumbúðum og mismunandi notagildi þeirra
  • undirbúningi og eftirmeðferð vegna rannsókna og skurðaðgerða
  • smitgátarvinnubrögðum
  • verkjameðferð annarri en lyfjum
  • helstu einkennum illkynja sjúkdóma í þeim líffærakerfum sem fjallað er um í áfanganum

Leikniviðmið

  • sýna skjólstæðingi og aðstandendum stuðning og umhyggju
  • greina á milli mismunandi hjúkrunarþarfa langveikra, bráðveikra og mikið veikra sjúklinga
  • vinna eftir viðurkenndri hjúkrunarskráningu
  • nota viðeigandi smitgátarvinnubrögð
  • nota mismunandi sáraumbúðir
  • taka þátt í þverfaglegri vinnu í meðferð skjólstæðinga
  • nota mismunandi verkjameðferðir

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í að undirbúa skjólstæðinga fyrir rannsóknir og aðgerðir
  • nýta sér hjúkrunarskráningu í starfi
  • sýna smitgát í verki
  • bregðast við breytingum á ástandi sjúklings á faglegan hátt
  • miðla upplýsingum um mismunandi verkjameðferðir
  • miðla þekkingu sinni í þverfaglegri vinnu
  • leiðbeina skjólstæðingum með athafnir daglegs lífs m.t.t. áhrifa sjúkdómsástands á sjálfsumönnun og heilsu
  • útskýra almennan og sérhæfðan undirbúning og eftirlit sjúklinga fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir
Nánari upplýsingar á námskrá.is