SIÐF1SF05(FÁ) - SIðfræði heilbrigðisstétta

fræðihugmyndir, heilbrigðisþjónusta, samskipti

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í þessum áfanga er lögð áhersla á þá hugmyndafræði og gildi sem liggja samskiptum fagfólks til grundvallar. Farið er í ýmis hugtök úr siðfræði heilbrigðisþjónustu eins og sjálfræði, velferð, faglegt forræði auk skyldna fagfólks og réttinda skjólstæðinga. Nemendum eru kynntar aðferðir við úrlausna siðferðilegra álitamála. Fjallað er um siðferði rannsókna á fólki og hugmyndir um réttláta heilbrigðisþjónustu.

Þekkingarviðmið

  • þeim gildum sem liggja mannlegri breytni til grundvallar
  • helstu hugtökum, markmiðum og aðferðum siðfræðinnar
  • helstu skyldum fagfólks og réttindum sjúklinga
  • skilyrðum siðferðilegs sjálfræðis og réttmæti faglegs forræðis
  • forsendum réttlátrar heilbrigðisþjónustu

Leikniviðmið

  • beita siðferðilegum hugtökum á markvissan hátt í ræðu og riti
  • skoða siðferðileg álitamál út frá fleiri en einu sjónarhorni bæði í ræðu og riti
  • greina og leysa úr siðferðisvanda
  • greina frá helstu fræðihugmyndum í siðfræði heilbrigðisþjónustu

Hæfnisviðmið

  • heimfæra þær fræðihugmyndir og hugtök sem fjallað var um í áfanganum yfir á einstök dæmi úr raunveruleikanum
  • geta rökstutt hin ýmsu sjónarhorn á siðferðilegum álitamálum
  • geta tengt þær fræðihugmyndir sem fjallað er um í áfanganum við daglegt líf
Nánari upplýsingar á námskrá.is