UPPL2TU05(SB) - Upplýsingatækni og tölvunotkun

Tölvunotkun, upplýsingtækni

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum kynnast nemendur og læra að nota fjölbreyttan hugbúnað og samskiptatæki og vinna með upplýsingar á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu. Markmið námsins er því að stuðla að færni þátttakenda í fjölbreyttu náms- og starfsumhverfi með hjálp upplýsingatækni. Í náminu er einnig lögð rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir t.d. störf í verslun og þjónustu. Farið verður yfir helstu póst- og samskiptaforrit og forrit sem tengjast glærugerð, ritvinnslu og töflureiknum sem og notkun leitarvéla og gagnabanka.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi fingrasetningar á hnappa- og númeraborð og réttrar vinnustöðu við tölvu
  • helstu samskiptatækjum og -hugbúnaði
  • algengustu forritum skrifstofuhugbúnaðar svo sem glærugerð, ritvinnslu og töflureikni

Leikniviðmið

  • nota rétta fingrasetningu á hnappa og númeraborð
  • nota tölvupóst og samskiptanet á markvissan hátt
  • nota helstu forrit sem tengjast glærugerð, ritvinnslu og töflureiknum
  • nota leitarvélar, gagnabanka og netaorðabækur

Hæfnisviðmið

  • meta, varðveita og miðla upplýsingum á skipulagðan og skilvirkan hátt
  • vinna með gögn í mismunandi hugbúnaði og miðla þeim á mismunandi hátt eftir umfangi og eðli gagnanna
Nánari upplýsingar á námskrá.is