SAGA2OL05 - Saga: 20. öldin

20. öldin

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SAGA2HÍ05
Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í Íslands- og mannkynssögu á 20. öld. Þættirnir eru valdir af nemendum og kennara og spilar áhugi nemenda því stórt hlutverk. Samhliða verður lögð áhersla á gagnrýna hugsun og hvernig á að leita heimilda, meta þær og nýta. Það er sérstaklega mikilvægt með tilliti til þess upplýsingamagns sem hefur orðið til á öldinni. Í áfanganum er kennslubókin ákveðið grunnefni sem er afar mikilvægt að nemendur lesi til þess að öðlast ákveðinn grunn. Dýpt er fengin með vinnunni í kennslustundum þar sem farið verður í stór og smá verkefni sem krefjast meðal annars sjálfstæðra vinnubragða og heimildaleitar. Nemendur vinna þessi verkefni jafnt einir og með samnemendum þar sem allir þurfa að bera jafn mikla ábyrgð á vinnunni. Fjölbreyttar matsaðferðir stuðla að því. Mikil áhersla er lögð á að nemendur kynnist mismunandi tegundum heimilda og læri að leggja mat á þær með gagnrýnni hugsun. Við verkefnavinnuna er lögð áhersla á að nemendur kafi djúpt ofan í viðfangsefnin sem verða fyrir valinu. Jafnframt kynnast nemendur kostum og göllum ólíkra miðlunarforma sögulegs fróðleiks með því að spreyta sig á þeim. Sú vinna markast af tímabilinu sem verður til umfjöllunar. Nálægðin í tíma veitir nemendur kost á fjölda heimildategunda til að leita í og verkefni munu bera keim af því og kynna nemendur fyrir flóru heimildanna. Ábyrgð nemenda á eigin námi er mikil og er eðli verkefnanna í lykilhlutverki í því.

Þekkingarviðmið

  • völdum þáttum í Íslands- og mannkynssögu á 20. öld
  • mikilvægi gagnrýninnar hugsunar
  • undirstöðuatriðum sagnfræði sem fræðigreinar
  • mismunandi tegundum heimilda
  • því hvað hefur haft áhrif á það hvernig samfélagið er sem við búum í.

Leikniviðmið

  • geta aflað sér fjölbreyttra heimilda um mismunandi viðfangsefni
  • meta gildi og áreiðanleika ólíkra heimilda
  • nota heimildir á viðurkenndan hátt
  • nýta frumheimildir og eftirheimildir í verkefnavinnu
  • beita gagnrýninni hugsun og rökstyðja skoðanir sínar
  • nota ólík miðlunarform til að koma á framfæri sögulegum fróðleik
  • lesa sagnfræðilega texta og túlka þá
  • vinna með öðrum að sameiginlegu markmiði þar sem allir bera jafna ábyrgð.

Hæfnisviðmið

  • geta beitt gagnrýninni hugsun á markvissan hátt
  • geta tjáð sig um sagnfræðileg efni
  • geta myndað eigin skilning á sögunni og því hvernig hún hefur áhrif á samfélagið sem við búum í
  • geta komið sínum skoðunum á sögunni á framfæri á markvissan og rökstuddan hátt
  • geti notað viðurkenndar aðferðir til að setja hugðarefni sín fram.
Nánari upplýsingar á námskrá.is