HAGF2ÞF05 - Þjóðhagfræði og fjármálalæsi

Þjóðhagfræði og fjármálalæsi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Engar
Nemendur fá innsýn í helstu grunnhugtök og meginviðfangsefni hagfræðinnar. Fjallað er um grunneiningar hagkerfisins og samspil þeirra í markaðsþjóðfélagi. Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og fjallað um helstu hagstærðir þjóðarbúsins og tengsl þeirra. Í áfanganum er einnig fjallað um gildi fjármála fyrir einstaklinginn, fyrirtækið og samfélagið með því að skoða ábyrgð á sviði fjármála, eðli kapítalísks markaðshagkerfis, eðli peninga, fjármálastofnanir, tekjur, útgjöld, sparnað, lánamál og fleira.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum hagfræðinnar
  • hvernig hlutverki hins opinbera er háttað
  • mikilvægi utanríkisviðskipta fyrir hagkerfi eins og það íslenska
  • gengi gjaldmiðla og áhrif gengis á viðskipti í víðum skilningi

Leikniviðmið

  • lesa og skilja fréttir um hagfræðileg málefni
  • afla sér upplýsinga um hagfræðileg málefni
  • reikna og túlka hagstærðir eins og verðbólgu, vexti, hagvöxt og fleira
  • gera sitt eigið skattframtal
  • fara með peninga í samræmi við eigin markmið í lífinu
  • greina fjármálahugtök
  • geta tekið skynsamlegar ákvarðanir um lán og sparnað
  • temja sér persónuþróun á sviði fjármála

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í umræðum um hagfræðileg málefni
  • taka upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál
  • gera sér grein fyrir hvernig hagkerfi starfar og helstu verkefnum sem aðilar hagkerfisins takast á við
  • vera læs á samfélagið og helstu stoðir hagkerfisins
  • afla sér frekari þekkingar um fjármál og geta nýtt sér upplýsingatækni og Netið við öflun upplýsinga og lausn verkefna sem tengjast fjármálaviðfangsefnum
Nánari upplýsingar á námskrá.is