SPÆN2RÞ05 - Spænska 4

Raunefni, listir, menning, þjóðfélag

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SPÆN1TJ05
Nemendur eru þjálfaðir í hlustun, lestri, tali og ritun. Áhersla er lögð á notkun tungumálsins, bæði munnlega og skriflega, í raunaðstæðum sem mætir hæfniviðmiðum þrepsins. Unnið er með efni af ýmsu tagi og á mismunandi þyngdarstigi, s.s. texta og hlustunar- og myndefni. Ýmis þemaverkefni eru unnin út frá raunefni sem tengjast listum, sögu, menningu og þjóðfélagi samtímans á viðkomandi málsvæðum

Þekkingarviðmið

  • ýmsum sérhæfðum þáttum í menningu og þjóðfélagi spænskumælandi málsvæða
  • sérhæfðari þáttum spænsks málkerfis
  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að skilja efni áfangans
  • notkun spænsku til að mæta hæfniviðmiðum áfangans bæði munnlega og skriflega

Leikniviðmið

  • skilja nokkuð vel þegar rætt er um málefni daglegs lífs eða málefni sem hann þekkir til
  • greina aðalatriði í frásögn, þ.m.t. í fjölmiðlum og á netinu, sem fjalla um afmörkuð málefni
  • skilja sértæk orð og orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talmál
  • skilja og túlka einfalda eða einfaldaða bókmenntatexta
  • skilja stuttar greinar, t.d. í tímaritum, dagblöðum og á netinu, um ýmis efni með hjálp orðabóka og uppsláttarrita
  • skima og skilja aðalatriði í nokkuð þungum textum sem tengjast þemum áfangans
  • taka þátt í samræðum um afmörkuð, undirbúin efni og beita málfari við hæfi hverju sinni
  • halda stutta og hnitmiðaða kynningu um efni sem hann hefur undirbúið fyrirfram
  • skrifa texta af fjölbreyttu tagi sem tengjast viðfangsefnum áfangans
  • skrifa útdrátt eða eigin hugleiðingu út frá frásögn í m.a. greinum og bókmenntatextum

Hæfnisviðmið

  • skilja aðalatriði í daglegu máli, svo sem samræður og fjölmiðlaefni
  • tileinka sér efni ritaðra texta af ýmsu tagi og hagnýta á mismunandi hátt
  • lesa og túlka skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá sig munnlega og skriflega um efni hans
  • ræða við aðra af nokkru öryggi um efni sem hann þekkir vel til
  • taka þátt í einföldum skoðanaskiptum og færa rök fyrir máli sínu
  • skrifa læsilegan texta um sérvalið efni
  • nýta á markvissan hátt upplýsingatækni og ýmis hjálpargögn við textasmíði
Nánari upplýsingar á námskrá.is