STÆR1AR05 - Algebra og rúmmál

algebra, rúmfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Áfanginn er ætlaður nemendum sem koma upp úr grunnskóla með einkunn á bilinu 5 til 8 í stærðfræði við lok grunnskóla og eru skráðir á stúdentsbraut
Meginviðfangsefni áfangans eru: Grunnhugtök í mengjafræði, upprifjun á talnameðferð, röð aðgerða, frumþáttun talna og almennum brotum. Undirstöðuatriði í algebru, liðun og þáttun og einföldun algebrubrota. Jöfnureikningur og lausn jöfnuhneppa. Prósentu- og vaxtareikningur. Rúmfræðireikningur, flatarmál, rúmmál, Pýþagórasarreglan, einslögun þríhyrninga og horn við hring. Hnitakerfið og jafna beinnar línu

Þekkingarviðmið

  • talnameðferð og frumtölum
  • almennum brotum og tugabrotum
  • heiltöluveldum
  • prósentu-, hlutfalla- og vaxtareikning
  • undirstöðuatriðum í algebru, fyrsta stigs jöfnum og lausn jöfnuhneppa
  • flatarmáli og rúmmáli algengra forma
  • jöfnu beinnar línu og hnitarúmfræði í tvívíðum fleti

Leikniviðmið

  • beita helstu aðgerðum á heilar tölur og brot og nota víxlreglu, tengireglu og dreifireglu í talnareikningi
  • beita veldareglunum og reglum sem gilda um röð aðgerða
  • reikna prósentur og vexti
  • beita undirstöðureglum algebru, s.s. liðun og þáttun, við lausn á jöfnum
  • vinna með jöfnu beinnar línu, finna hallatölu og skurðpunkta við ása hnitakerfisins
  • reikna flatarmál og rúmmál algengra forma
  • reikna hornaföll í rétthyrndum þríhyrningum
  • vinna með Pýþagórasarreglu og reglur um einslögun þríhyrninga
  • beita reglum um horn við hring
  • tjá sig munnlega og skriflega á stærðfræðilegan hátt

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
  • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
  • fylgja og skilja röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
  • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta
  • vinna til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
  • takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum og jákvæðum huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is