ÍSLE3YL05(SB) - Yndislestur og bókmenntir

Yndislestur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Nemandi skal vera kominn á 3. þrep í íslensku
Í áfanganum er áherslan á bókmenntir og gefandi lestarrupplifun. Nemendur kynnast bæði íslenskum og erlendum skáldverkum. Þeir lesa valdar bókmenntir og skoða þær í samhengi við sig sjálfa sem og víxlverkun þeirra við samfélag og samtíma. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og sjálfsábyrgð. Sömuleiðis er lögð áhersla á að nemendur þjálfist í að mynda sér skoðun og tjá hana ásamt lestrarreynslu sinni.

Þekkingarviðmið

  • hugtökum sem notuð eru við greiningu bókmennta
  • formlegum og hugmyndalegum einkennum valinna skáldverka
  • mikilvægi lestrar og mögulegri endurspeglun skáldverka við samfélag og samtíma

Leikniviðmið

  • beita hugtökum bókmenntafræðinnar til greiningar á skáldsögum
  • túlka og njóta bókmennta
  • viðra eigin hugmyndir um bókmenntir og setja þær fram munnlega og skriflega

Hæfnisviðmið

  • beita gagnrýninni hugsun og setja fram skoðanir sínar um bókmenntir
  • njóta bókmennta og setja í samhengi við samfélag sitt, einstakling og samtíma
  • dýpka lesskilning sinn og átta sig á mikilvægi bókmenntalestur
Nánari upplýsingar á námskrá.is