Afbrotafræði og frávikshegðun
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: FÉLA3KS05
Framhaldsáfangi þar sem lögð er áhersla á að beita rannsóknaraðferðum og kenningum með það að markmiði að auka þekkingu nemenda á afbrotafræði sem fræðigrein. Jafnframt verður leitast við að nemendur þekki samhengi menningar og afbrota. Mikilvægt er að nemendur geti greint hvaða þættir í umhverfi einstaklingsins geta haft áhrif og aukið líkurnar á að hann leiðist í afbrot. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist færni í að beita helstu hugtökum og kenningum afbrotafræðinnar
Þekkingarviðmið
- tengslum félagsmótunar og afbrota
- afbrotafræði sem fræðigrein
- samhengi menningar og afbrota
- frávikum og afbrotum sem afstæðum fyrirbærum
Leikniviðmið
- skipuleggja ferilmöppu
- greina frá hvernig afbrot geta verið breytileg eftir tímabilum innan sama samfélags
- greina frá hvernig afbrot eru afstæð eftir menningu samfélagsins
- skilgreina ólík hugtök og nálganir afbrotafræðinnar
- skýra hvernig hægt er að beita ólíkum kenningum í afbrotafræði
- skýra hvernig beita á ólíkum aðferðafræðilegum sjónarhornum í afbrotafræði
Hæfnisviðmið
- skilgreina og skýra helstu hugtök greinarinnar
- beita gagnrýnni hugsun í fræðilegri umræðu sem og í almennri umræðu
- skilja helstu aðferðir greinarinnar og nýta sér kenningar hennar í leik og starfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is