JARÐ3JS05(SB) - Jarðsaga

jarðsaga

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: JARÐ2AJ05
Áfanginn fjallar um sögu jarðar, hvernig jörðin varð til og þróaðist frá upphafi til okkar daga. Saga jarðskorpunnar, lofthjúpsins, hafanna og lífsins er rakin og gerð grein fyrir því hvernig jarðlög verða til, þróast í aldanna rás og hvernig lesa má úr þeim jarðsöguna. Myndun og jarðsaga Íslands er rakin, gerð er grein fyrir sérkennum landsins og fjallað um sérstakar jarðlagasyrpur. Í áfanganum túlka nemendur og teikna jarðlagasnið, skrifa heimildaritgerð og halda fyrirlestra.

Þekkingarviðmið

  • kenningum um uppruna og aldur jarðar
  • jarðsögutöflunni, geti skýrt hana og sagt frá einkennum hverrar aldar í sögu jarðar
  • þróun lífríkis á jörðinni út frá völdum dæmum og þróun einstakra hópa lífvera
  • loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á yfirborði jarðar
  • landreki og afleiðingum þess á ákveðnum svæðum á jörðinni
  • jarðsögu Íslands með tilliti til mismunandi þátta, s.s. loftslags, jarðlaga, eldvirkni og lífríkis
  • ritgerðarsmíð og heimildavinnu

Leikniviðmið

  • túlka jarðlagasnið með tilliti til jarðsögu ákveðinna svæða
  • leita sér heimilda um afmarkað efni og nýta þær á viðeigandi hátt
  • lesa fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli

Hæfnisviðmið

  • skýra myndun mismunandi jarðlaga og tengja við ríkjandi loftslagsaðstæður á myndunartíma þeirra
  • tengja jarðmyndanir á Íslandi og ríkjandi umhverfisaðstæður á myndunartíma þeirra
  • draga ályktanir um ólíkar aðstæður á Íslandi varðandi landslag og jarðmyndanir
  • sýna sjálfstæð og öguð vinnubrögð við gagnaöflun og geta miðlað niðurstöðum úr verkefnum á fjölbreyttan hátt
  • tengja undirstöðuþætti jarðfræðinnar við umhverfi sitt og geta fjallað á rökrænan hátt um mikilvægi og notagildi þeirra fyrir daglegt líf
Nánari upplýsingar á námskrá.is