Breytingar á yfirborði jarðar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LAND2HA05
Í þessum framhaldsáfanga í landafræði er áherslan lögð á að skoða heiminn enn frekar og allar þær breytingar sem eiga sér stað á yfirborði jarðar með augum landfræðinnar. Fjallað er um stöðu mannsins og landsvæða út frá náttúrufarslegum, efnahagslegum, félagslegum og pólitískum aðstæðum í tíma og rúmi
Þekkingarviðmið
- stöðu mannsins í heiminum
- náttúrufarslegum, efnahagslegum, félagslegum og pólitískum aðstæðum á ólíkum svæðum
Leikniviðmið
- bera saman svæði og setja í landfræðilegt samhengi
- skipuleggja og vinna lokaverkefni sem tengist efnisþáttum áfangans
Hæfnisviðmið
- setja svæði og atburði í hnattrænt samhengi
- gera sér grein fyrir mikilvægi greinarinnar fyrir mann og samfélag
Nánari upplýsingar á námskrá.is