STJÖ2AL05(SB) - Alheimurinn

alheimurinn

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÆR2AH05 eða STÆR2AR05
Viðfangsefni áfangans er stjörnuhiminninn og þau fyrirbæri sem þar finnast. Efnisatriði eru: stjörnuathuganir, stjörnuhiminninn, stjörnuhnit, tímatalskerfi, birtustig, innri gerð sólarinnar, ævi sólstjarna, HR-graf, stjörnuleifar, vetrarbrautir, rauðvik, heimsfræði og Miklihvellur

Þekkingarviðmið

  • innri gerð og þróun sólstjarna
  • grunnþáttum stjörnuathugana
  • grunnstoðum heimsfræðinnar
  • eiginleikum vetrarbrauta
  • ólíkum stjörnuleifum og eiginleikum þeirra
  • upphafi og mögulegum endalokum alheimsins
  • samsetningu alheimsins (hulduefni og hulduorku)

Leikniviðmið

  • finna stað á hvelfingunni út frá stjörnuhniti
  • mæla stjörnuhnit stjörnu
  • finna hágöngu- og lággönguhæð stjörnu
  • finna dagsetningu hágönguhæðar
  • reikna raunbirtu út frá sýndarbirtu

Hæfnisviðmið

  • sýna sjálfstæð og öguð vinnubrögð í upplýsingaöflun, mati, úrvinnslu og framsetningu
  • mynda sér heildstæða sýn á heimsmynd nútímans
  • stunda stjörnuathuganir með litlum stjörnusjónauka
Nánari upplýsingar á námskrá.is