algebra, rúmfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Nemandi hafi lokið stærðfræði með einkunnina 8 eða hærra úr grunnskóla eða hafi lokið undirbúningsáfanga
Í áfanganum er farið í undirstöðuatriði algebru, veldi, veldareglur og rætur. Einnig er farið í föll, gröf falla og hagnýt verkefni eru leyst. Hagnýting prósentu- og vaxtareiknings. Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi og einslögun
Þekkingarviðmið
- undirstöðuatriðum algebru
- veldum, veldareglum og rótum
- fallhugtakinu og túlkun grafa
- prósentu og vaxtareikningi
- hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningi og einslögun
Leikniviðmið
- vinna með einslögun og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi
- leysa hagnýt verkefni í prósentu- og vaxtareikningi
- teikna upp fall út frá gildatöflu og lesa út úr grafinu ýmsar upplýsingar
- beita velda- og rótarreglum
- beita reglum sem gilda í bókstafareikningi, sbr. að þátta, liða og leysa jöfnur
Hæfnisviðmið
- setja margskonar verkefni upp með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
- beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
- skrá lausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum um þær við aðra
- átta sig á tengslum aðferða við framsetningu
- beita frumkvæði, innsæi og frumleika við lausn verkefna
- nýta sér stærðfræðikunnáttuna í daglegu lífi
Nánari upplýsingar á námskrá.is