ÍÞRÓ1GA01(SB) - Ganga

Ganga

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Áfanginn er verklegur. Gengið er í hóp með kennara. Markmið áfangans er að nemandi fræðist um heilsugöngu og stuðla skal að því að nemendur geti sjálfir ræktað líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju með gönguferðum

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi hreyfingar
  • áhrifum góðrar heilsugöngu á líkamann
  • líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu
  • leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt við daglegar athafnir
  • notkun púlsmæla og göngumæla
  • gildi samvinnu, umburðarlyndis og virðingar
  • forvarnargildi líkamsræktar

Leikniviðmið

  • ganga og velja sér góðar gönguleiðir
  • hreyfa sig til heilsubótar og ánægju
  • nýta sér tæknina til hvatningar á aukinni hreyfingu
  • taka tillit annarra og hvetja þá

Hæfnisviðmið

  • stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
  • sýna öðrum virðingu við leik, keppni, nám og störf
  • vinna að bættri heilsu í samvinnu við aðra
  • styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í greininni
  • gera hreyfingu að lífsstíl
Nánari upplýsingar á námskrá.is