ÍÞRÓ1BA01(SB) - Badminton

badminton

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Áfanginn er verklegur. Badminton er leikið sér til ánægju og heilsuræktar. Kynntar eru helstu reglur íþróttarinnar. Nemendur eru hvattir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju

Þekkingarviðmið

  • helstu leikreglum og grunnatriðum greinarinnar
  • mikilvægi hreyfingar
  • líkamlegri, andlegri og félagslegri heilsu
  • leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt við daglegar athafnir
  • gildi samvinnu, umburðarlyndis og virðingar í leik, keppni og starfi
  • forvarnargildi líkamsræktar
  • mikilvægi upphitunar

Leikniviðmið

  • beita grunntækni í greininni
  • leika badminton sér til heilsubótar og ánægju
  • vinna með öðrum að lausnum verkefna
  • taka tillit til annarra og hvetja þá

Hæfnisviðmið

  • stunda hreyfingu án mikils tilkostnaðar
  • sýna öðrum virðingu við leik, keppni, nám og störf
  • vinna að bættri heilsu í samvinnu við aðra
  • styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í greininni
  • gera hreyfingu að lífsstíl
Nánari upplýsingar á námskrá.is