TEXT1BH05(SB) - Búningahönnun

Búningahönnun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Í áfanganum fá nemendur fá innsýn í feril búningagerðar fyrir gefið sviðsverk. Gagnasöfnun er framkvæmd með upplýsingaleit í bókasöfnum og /eða á neti. Hugmyndakort og unnið með samsetningu skissa, úrklippa, útprents og stikkorða. Tillögur að búningi á ákveðna persónu eru skissaðar og settar upp í vinnubók. Grunnsnið er unnið út frá tilbúnu sniði og það lagað að hugmynd nemandans. Prufuflík er mótuð út frá sniði, gjarna á gínu. Leitast er eftir að útvega viðeigandi textílefni í einfaldan búning, annað hvort á heila gínu, persónu eða sem hluta af búningatillögu. Vettvangsferðir eru farnar og sýning verður á verkum nemenda

Þekkingarviðmið

  • gagnasöfnun í formi þankahríðar og gerð hugmyndaspjalds út frá gefnu þema
  • hvernig afla má upplýsinga út búningasögu yfir ákveðin, afmörkuð tímabil
  • upplýsingaöflun varðandi sviðverk það sem skal unnið með
  • mikilvægi textílefna í búningagerð
  • orðaforða búningahönnunar í víðustu merkingu þess
  • geta unnið með skýringarmyndir og vinnulýsingar

Leikniviðmið

  • móta tillögu að búningi fyrir ákveðið sviðsverk
  • taka upp snið úr sniðablaði eða bók og móta eftir eigin hugmyndum
  • sníða einfalda flík eða hluta af flík og sauma saman svo úr verði nothæf heild
  • máta snið og breyta því eftir þörfum
  • nota orðaforða greinarinnar við notkun vinnulýsinga
  • setja búningahönnun sína fram, í tengslum við sviðsmynd, t.d. með skissu eða mótun af sviði og búningi í pappír

Hæfnisviðmið

  • fullvinna búning frá hugmynd að fullunnu verki
  • skila af sér skilmerkilegri hugmyndavinnu og vinnulýsingu svo hægt sé að fara eftir henni
  • vinna hönnun sína út frá heild og/eða sögu
  • skila frá sér fullunnu verki með vinnuteikningum og vönduðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is