STAR1VS05 - Starfsnám með áherslu á vinnustaði

Vinnustaðir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í þessum áfanga fá nemendur tækifæri til að kynna sér mismunandi vinnustaði. Við val á vinnustöðum verður tekið mið af óskum nemenda. Starfsnámið verður skipulagt í samráði við vinnuveitendur og hefur kennari eða annar starfsmaður skólans umsjón með starfsnáminu. Nemendur vinna eftir vinnulistum sem taka mið af aðstæðum hverju sinni.

Þekkingarviðmið

  • Fjölbreyttum vinnustöðum
  • Undirstöðuþáttum þess vinnustaðar sem hann kýs að sinna í sínu starfsnámi
  • Þeim áhöldum, tækjum og tólum sem ætlast er til að viðkomandi nýti sér eða meðhöndli úti á vettvangi
  • Hættum sem geta verið í starfsumhverfinu

Leikniviðmið

  • Velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
  • Vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn
  • Fylgja fyrirmælum
  • Fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
  • Fylgja samskiptareglum á vinnustað
  • Koma sér til og frá vinnu á réttum tímum

Hæfnisviðmið

  • Taka þátt í atvinnulífinu
  • Biðja um aðstoð ef þess þarf
  • Tilheyra starfsmannahópi
Nánari upplýsingar á námskrá.is