LÝÐH1ÍÚ02 - Lýðheilsa með áherslu á útivist og hreyfingu

Íþróttir og útivist

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í áfanganum er verið að kynna nemendur fyrir útivist, fjölbreyttum gönguleiðum, hreyfingu og útbúnaði sem mikilvægur er í stuttar göngur. Áfanginn er verklegur og fer fram á skólatíma.

Þekkingarviðmið

  • Mikilvæg góðrar heilsu fyrir framtíðina
  • Hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
  • Mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar

Leikniviðmið

  • Auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
  • Nýta snjalltækni til að kortleggja útivistina

Hæfnisviðmið

  • Nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
  • Viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu
Nánari upplýsingar á námskrá.is