LÝÐH1HR02 - Lýðheilsa með áherslu á hreyfingu

hreyfing og lýðheilsa - verklegt

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áfanginn er verklegur og fer fram í íþróttasal eða utandyra. Áhersla er lögð á grunnþætti þols, styrktaræfingar og liðleika. Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar til að auka úthald, s.s útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun og leikir. Reynt verður að hafa æfingar við áhuga, hæfi og getu hvers og eins. Farið verður í æfingar til að bæta líkamsstyrk, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd eða í tækjasal. Gerðar verða teygjuæfingar í lok kennslustundar og farið yfir mikilvægi þeirra.

Þekkingarviðmið

  • Hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
  • Hvað reglubundin hreyfing getur verið góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
  • Mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar

Leikniviðmið

  • Auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
  • Reikna út æfingarpúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
  • Nýta sér aðferðir til að mæla þol, styrk og liðleika

Hæfnisviðmið

  • Nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu
  • Viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu
Nánari upplýsingar á námskrá.is